Sveinbjörn Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 892-2916
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 693-2916
Fellahvarf 1, 203 Kópavogur
84.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
119 m2
84.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2004
Brunabótamat
57.150.000
Fasteignamat
75.400.000

Fasteignasalan Garður 

Virkilega falleg og björt útsýnisíbúð á þriðju og efstu hæð í fímm íbúða húsi með stórum svölum með glæsilegu fjallaútsýni, granít borðplötur, gott skipulag, gert ráð fyrir þremur svefnherbergjum, stofa borðstofa.
Eignin er alls 119,2 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin er 112 fm og sérgeymsla í kjallara 7,2 fm. 

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og skápum.  Sjónvarpshol þar sem er möguleiki að stúka herbergi af, var áður herbergi. Hjónaherbergi með góðum fataskápum.   Baðherbergi með flísum á gólfi, baðkar, sturta, innrétting, handklæðaofn og wc í vegg.  Stór og björt stofa og borðstofa  útg. á rúmgóðar svalir, fallegt útsýni að Elliðavatni og víðar.  Eldhúsið er með ljósri innréttingu, háfur, helluborð, ofn í vinnuhæð og upþvottavél.  Þvottahús með flísum á gólfi. 
Á jarðhæð, hjóla- og vagnageymsla ásamt sérgeymslu. 

Upplýsingar:
Eignin er mjög vel skipulögð og rúmgóð í alla staði. Í byggingu lét þáverandi eigandi breyta teikningum (Rut Káradóttir hannaði) þannig að það væru bara tvö svefnherbergi staðin fyrir þrjú, hjónaherbergið var stækkað úr 12,5 fm í 14,9fm og hin tvö herbergin sameinuð í eitt 18,1fm herbergi sem er nýtt sem sjónvarpshol í dag. Eignin er staðsett í fallegu 3ja hæða húsi sem aðeins fimm íbúðir deila saman.  Glæsileg eign á fallegum stað í Kópavogi,


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.