Fasteignasalan Garður
Álfaskeið 86 er seld eftir aðeins nokkra daga á skrá. Mikill áhugi var fyrir eigninni og erum við með kaupendur á skrá sem eru að leita að sambærilegri eign. Ef þú ert í söluhugleiðingum hafðu þá endilega samband.
Fasteignasalan Garður og Einar Örn lgf. kynna til sölu 4 herbergja endaíbúð á 2. hæð við Álfaskeið 86. Eignin er skráð 126,7 fm. Þar af er íbúðin 94,1 fm, bílskúrinn 26,3 fm og geymslan 6,3 fm. Góðar hornsvalir til suðurs, stór og gróinn garður. Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla í kjallara. Húsið er að mestu klætt að utan, búið að setja dúk á þak bílskúrs. Búið er að skipta um glugga á gaflhlið hússins.Eignin skiptist í: Forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, svalir, sameiginlegt þvottahús, geymslu og frístandandi bílskúr.
Samkvæmt yfirlýsingu húsfélags eru engar framkvæmdir samþykktar og staða hússjóðs mjög góð.Nánari lýsing:Forstofa með harðparketi á gólfi og skáp með innfelldri lýsingu.
Gangur er með harðparketi á gólfi.
Stofan er stór og björt með útgengt á góðar og sólríkar suðursvalir með fallegu útsýni.
Eldhús er rúmgott með L-laga innréttingu og eyju. Falleg hvít innrétting með bakarofni í vinnuhæð með góðu vinnuplássi. Helluborð á eyju ásamt innbyggðum vínkæli.
Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskápum með innfelldri lýsingu.
Svefnherbergi í forstofu er með harðparketi á gólfi. Herbergið var stækkað á kostnað geymslu innan íbúðar.
Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Upphengt klósett ásamt baðkari með sturtu, handlaug og veggskápum.
Geymsla í kjallara er 6,3 fm.
Þvottahús er sameiginlegt á hæðinni.
Hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Bílskúr er 26,3 fm og er breiðari en sambærilegir bílskúrar í götunni. Upphitaður með köldu vatni. Bílskúrshurð er með inngönguhurð og hurðaropnari er í skúr.
Annað:Mjög góð og fjölskylduvæn staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu ss. matvöruverslanir, íþróttasvæði, leik- og grunnskóla. Fjölbreytt verslun í nágrenni og stutt út á stofnbraut.
Nánari upplýsingar veitir:Einar Örn Ágústsson - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 888-7979
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður