Fasteignasalan Garður
Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á annarri hæð að Nónhæð 3 í Garðabæ.
Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú herbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og geymsla. Þá fylgir íbúðinni jafnframt hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 103,80 fermetrar.
Nánari lýsing:Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur og fatahengi.
Eldhús: Snyrtileg hvít eldhúsinnrétting með góðu vinnu- og skápaplássi, flísar milli efri og neðri skápa. Bakaraofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og pláss fyrir stóla við eldhúsborð. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Bjart og gott samliggjandi rými. Opið á er milli stofu og eldhúss. Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengt á suðursvalir með góðu útsýni.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með innbyggðum skápum með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, nýtist sem skrifstofa í dag.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðinnrétting með efri skáp við vask. Sturtuklefi, auka skápur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Smáralindin er í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasaliNetverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður