Fasteignasalan Garður
Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu fallega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð með sér bílastæði í bílakjallara að Krummahólum í Reykjavík.
Íbúðin skiptist í anddyri, svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 72,50 fermetrar, þar af er geymsla 5,0 fermetrar og stæði í bílakjallara 23,80 fermetrar.
Nánari lýsing: Anddyri: Flísar á gólfi og gott pláss fyrir fataskáp.
Eldhús: Snyrtileg hvít eldhúsinnréttin með innbyggðum ísskáp.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými. Parket á gólfi. Bjart og gott rými.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með útgengi á stórar svalið með góðu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Innrétting við vask, salerni og baðkar með sturtu.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður