Fasteignasalan Garður
Baldur fasteignasali - Sími
450-0000 kynnir: Í einkasölu fallega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á annarri hæð í nýlegu húsi (2016) að Skyggnisbraut 30 á einstökum stað í Úlfarsárdal.
Stutt er í fallegar gönguleiðir og náttúruperlur.
Íbúðin skiptist í anddyri, svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla í kjallara og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 77,20 fermetrar, þar af er geymslan 8,8 fermetrar.
Nánari lýsing:Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur sem er lokaður upp í loft.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting með innbyggð uppþvottavél og góðu vinnu- og skápaplássi. Borðkrókur í eldhúsinu, útgengi á svalir og fallegt útsýni.
Stofa/borðstofa: Bjart og gott samliggjandi rými með glugga í tvær áttir. Útgengt á svalir.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með skápum með góðu skápaplássi. Skáparnir ná frá gólfi upp í loft.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Innrétting með ágætis skápaplássi við vask. Flísalögð sturta, vegghengt klósett, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Annað: Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í nýlegu og fjölskylduvænu hverfi í Úlfarársdal þar sem stutt er í grunnskóla, útivistarsvæði og sundlaug. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni og útvist í kringum Úlfarsfell.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / Beinn sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasaliNetverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður