Fasteignasalan Garður
*Eignin er seld*
Hafðu samband ef þú átt sambærilega eign. Mjög mikill áhugi.
Baldur fasteignasali - Sími
450-0000 kynnir: Í einkasölu fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð með
sér bílastæði í bílakjallara að Krummakólum í Reykjavík.
Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með öllum helstu upplýsingum. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 105,50 fermetrar, þar af er íbúð og geymsla 81,30 og stæði í bílakjallara 24,20 fermetrar.
Nánari lýsing:Anddyri: parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Eldri eldhúsinnréttin með mjög góðu skápaplássi, flísar milli efri og neðri skápa. Borðkrókur í eldhúsinu.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými. Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengt á stórar suður svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskáp með góðu skápaplássi. Útgengi á svalir.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Baðkar með sturtu. Baðinnrétting með efri skáp. Salerni.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður