Sveinbjörn Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 892-2916
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 693-2916
Helluvað 1, 110 Reykjavík (Árbær)
Tilboð
Fjölbýli / Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
108 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
49.150.000
Fasteignamat
68.200.000

Fasteignasalan Garður 

Eignin er seld með fyrirvara. 12 manns óska eftir sambærilegri eign. Hafðu samband ef þú átt sambærilega eign. 

Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir:
 Í einkasölu bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórum afgirtum timburpalli sem snýr í suður. Frábær staðsetning á fjölskylduvænum og eftirsóttum stað við Helluvað 1 í Norðlingaholti.

Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með söluyfirliti, teikningu ofl. 

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, þrjú góð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 108,80 fermetrar, þar af er geymslan 10,6 fermetrar.
 
Nánari lýsing: 
Forstofa: Lokuð forstofa með náttúruflísum á gólfi og innbyggðum fataskáp. 
Eldhús: Falleg eikar eldhúsinnréttingu frá HTH með miklu skápaplássi. Eldhúseyja með skápum, skúffum og spanhelluborði. AEG stál bakaraofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og lýsing undir efri skápum. Nýleg borðplata (2020) og gott vinnupláss. Eldhús er opið inn í stofu.
Stofa/borðstofa: Í björtu og opnu rými, parket á gólfi og útgengt á stóran afgirtan timburpall til suðurs (ca 30 fm sérafnotaréttur). Gott pláss fyrir borðstofuborð á milli eldhúss og stofu.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskápum og glugga sem snýr í suður, parket á gólfi. 
Barnaherbergi I: Gott herbergi með fataskáp, parket á gólfi. 
Barnaherbergi II:Gott herbergi með fataskáp, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með viðarinnréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtu. Ágætis skápapláss í baðinnréttingu. 
Þvottahús: Hillur / geymslupláss og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Náttúruflísar og gólfi. 

Um er að ræða einstaklega vandaða og góða eign í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, gönguleiðir og náttúru. Eign sem er þess virði að skoða. 
Annað: 
- Sandkassi, rólur og rennibraut eru úti í garði. 
- Snjóbræðsla í stéttinni fyrir framan.
- Í íbúðinni er harðparket frá Parka (síðan 2020).

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski -
 löggiltur fasteignasali
[email protected]  /  sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali


Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.