Fasteignasalan Garður
4ra herb. endaíbúð á 5. hæð efstu hæð í lyftuhúsi við Vallakór í Kópavogi með rúmlega 25 fm. yfirbyggðum svölum. Sérbílastæði í sameiginlega bílastæðahúsi. Mjög barnvænt hverfi þar sem örstutt er í leikskóla, skóla og íþróttaaðstöðu og verslun. Íbúðin er skráð 115,4 fm og geymsla 8,3 fm. = 123,7 fm. 25,1 fm svalir eru ekki skráðar inn í fermetra. Eignin skiptist í: Forstofu,hol, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu/borðstofu og eldhús í opnu rúmi, þvottahús, geymslu og bílastæði.
Gólfefni og innréttingar: Fljótandi parket á öllum gólfum nema forstofu, þvottahúsi og baðherbergi. Innréttingar, eru frá Brunás.
Forstofa: flísalögð með góðum fataskáp.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, sturtuklefa og fallegri innréttingu.
Eldhús: l-laga hvít innrétting, kvarts steinn á borðum, gler á milli skápa og fyrir ofan helluborð.
Stofa/borðstofa: er opið rými með eldhúsi. Parket á gólfum og útgegni á ca. 25. fm. yfirbyggðar flísalagðar svalir með miklu útsýni.
Hjónaherbergi: rúmgott, parketlagt, innangengt í fataherbergi með góðri innréttingu.
Svefnherbergi1: mjög rúmgott, parketlagt, með skápum.
Svefnherbergi 2: parketlagt og með fataskáp.
Þvottahús: er flísalagt með góðri innréttingu.
Sérgeymsla í sameign ásamt
hjólageymslu og vagnageymslu.Sérbílastæði í bílastæðahúsi þar sem búið er að leggja lagnir að fyrir hleðslustöð. Að auki eru dekkja, vagna- og hjólageymslur í sameign. Virkilega björt og falleg eign þar sem stutt er í þjónustu og skóla.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður