Fasteignasalan Garður
Baldur J, löggiltur fasteignasali sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu góð og vel skipulögð 4-5 herbergja íbúð á fjórðu hæð að Bólstaðarhlíð í Reykjavík.Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú góð svefnherbergi, gluggalaust herbergi / fataherbergi, eldhús, stór stofa og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla í kjallara og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 115,2 fermetrar, þar af er íbúðin 107,6 fermetrar og geymslan 7,6 fermetrar.
Smellu hér til að sækja kynningarbækling strax Nánari lýsing:Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur.
Hjónaherbergi: Rúmgott, teppi á gólfi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og pláss fyrir fataskáp.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og pláss fyrir fataskáp.
Fataherbergi/herbergi: Gluggalaust herbergi sem nýtist vel sem fataherbergi eða skrifstofa.
Eldhús: Eldhúsið er rúmgott og er með góðu skápaplássi. Upprunanleg eldhús innrétting með flísum milli efri og neðri skápa. Borðkrókur og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa: Stór og björt stofa með útgengi á góðar svalir.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Eign sem er þess virði að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður