Fasteignasalan Garður
Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir: Vel skipulagt parhús á jaðarlóð með ótrúlegu útsýni yfir borgina og Esjuna, í nýju hverfi á Álftanesi. Húsið skilast á byggingarstigi 5, tilbúið til innréttinga. Lóð verður full frágengin og innkeyrsla hellulögð með snjóbræðslulögn lögð í plan og að lagnagrind. Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með teikningum og öllum helstu upplýsingum.Um er að ræða einstaklega vandað timbur einingahús sem uppfyllir ISO 9001 gæðakröfur. Sökklar eru staðsteyptir með járnbentri steinsteypu. Gólf neðri hæðar eru steypt og milliplata er með timburgólfi tilbúið undir gólfefni.
Húsið skiptist í anddyri, stóra stofu með útgengi á pall, þrjú til fjögur, eldhús, þvottahús, tvö baðherbergi og aðra stofu á efri hæð með útgengni á svalir. Samkvæmt skráningartöflu er birt flatarmál eignarinnar 196,70 fermetrar. Gólfflötur er þó töluvert stærri en skráðir fermetrar segja til um þar sem hluti af efri hæð er undir súð.
Nánari lýsing - Neðri hæð:Anddyri: Gert ráð fyrir fataskáp.
Eldhús: Bjart og gott rými, eldhús og borðstofa með stórum gluggum og ótrúlegu útsýni yfir borgina og Esjuna.
borðstofa: Borðstofa og eldhús mynda opið rými með glugga í þrjár áttir. Gott pláss fyrir borðstofuborð. Frá stofunni er útgengt á sólpall með ótrúlegu útsýni.
Stofa: Á neðri hæð er stofa sem auðvelt er að breyta í rúmgott svefnherbergi.
Svefnherbergi: 9,1 fermetrar, gert er ráð fyrir fataskáp
Svefnherbergi: 8,9 fermetrar, gert er ráð fyrir fataskáp
Baðherbergi: 8,4 fermetrar. Gert er ráð fyrir sturtu, salerni og skolvask.
Geymsla: Inn af þvottahúsi.
Þvottahús: Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara, 4,4 fermetrar.
Nánari lýsing - Efri hæð:Stofa 2: Rúmgóð 11,1 fermetrar stofa með svölum með ótrúlegu útsýni yfir borgina.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott 19,4 fermetra herbergi með góðri lofthæð og auknu gólfplássi undir súð, gert er ráð fyrir fataskápum.
Salerni: 4,5 fermetrar. Gert er ráð fyrir sturtu, salerni og skolvask.
Arkitekt hússins: Kristinn Ragnarsson
Burðavirkishönnuður: Guðmundur Óskar Unnarsson
Raflagnahönnuður: Eyjólfur Björgvinsson
Vatnslagnahönnuður: Jón Kristjánsson
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign á jaðarlóð með ótrúlegu útsýni í eftirsóttu hverfi á Álftanesi.
Eign sem er þess virði að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður