Fasteignasalan Garður
Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir einstakt tækifæri: Sérbýli sem skipt hefur verið í tvær íbúðir með sér fastamúmer og sérinngang og bílskúr sem hefur verið innréttaður sem íbúð.
Samtals er húsið 193,4 fermetrar skv. Þjóðskrá. Húsið hefur verið töluvert endurnýjað á síðastliðnum árum. Einstakt tækifæri og miklir tekjumöguleikar.
Fasteignamat 2024 samtals: 79.950.000 kr. Íbúð merkt 01-01-01, F208-9032. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð samtals 77,2 fermetrar.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu er birt stærð séreignar neðri hæðar þó sögð vera 81,4 fermetrar. Samkvæmt fasteignayfirliti er íbúðin sögð vera 73,7 fm og geymslur 7,7 fm.
Eignin skiptist í anddyri, gang, eldhús, stofu, tvö herbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Tvær geymslur tilheyra íbúðinni sem aðgengilegar eru við innganginn í íbúðina.
Nánari lýsing eignar: Forstofa: Sérinngangur er í íbúðina inn í anddyri og gang. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott hornherbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Var endurnýjað 2016. Upphengt salerni, walk-in sturta, handklæðaofn og annar ofn. Aðstaða fyrir þvottavél. Vélræn loftræsting og opnanlegur gluggi. Flísar í hólf og gólf.
Stofa: Björt og góð stofa með glugga í tvær áttir, suður og vestur. Flísar á gólfi.
Eldhús: Endurnýjað 2020. Snyrtileg IKEA innrétting, innbyggð uppþvottavél. Gashelluborð. Útgengt er á stóran sólpall með skjólveggjum og út í garð sem snýr í suður. Heitur pottur á palli.
Þvottaherbergi: Með tveimur gluggum sem endurnýjaðir voru 2020 (nýir gluggar og gler). Steypt gólf.
Aðrar framkvæmdir í íbúð neðri hæðar: - Nýjar innihurðir 2020.
- Rafmagn endurnýjað 2020.
- Gólfhiti lagður í alla íbúðina 2020 (nema baðherbergi). Nýjar flísar og parket lagt í kjölfarið.
- Nýir gluggar og gler í geymslu 2020.
- Sagað fyrir svalahurð út úr eldhúsi 2016 og gluggar endurnýjaðir.
Fasteignamat 2024 = 34.650.000 kr. fyrir neðri hæð, F2089032
Íbúð merkt 01-02-01, F208-9033. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð samtals 116,2 fermetrar, þar af íbúð 75,4 fermetrar og bílskúr 40,8 fermetrar. Samræmi er á milli opinberrar skráningar Þjóðskrár, eignaskiptayfirlýsingar og fasteignayfirlits efri hæðar. Loft merkt 0203 er yfir efri hæð og er óskráð rými en nýtist sem geymsla.
Eignin skiptist í anddyri, gang, eldhús, stofu, tvö herbergi og baðherbergi. Loft er yfir íbúðinni sem er óskráð rými en nýtist sem geymsla. Íbúðinni tilheyrir 40,8 fm bílskúr sem innréttaður hefur verið sem stúdíóíbúð með eldhúsaðstöðu og baðherbergi með sturtu.
Nánari lýsing eignar:Anddyri: Sérinngangur er í íbúðina inn í anddyri og gang. Innbyggður þrefaldur fataskápur er á ganginum. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi 1: Rúmgott hornherbergi. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Hornherbergi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtileg hvít innrétting, endurnýjuð 2020. Salerni, baðkar með sturtu. Gluggi og opnanlegt fag. Hvítar flísar í hólf og gólf.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með glugga í tvær áttir, suður og vestur. Nýtt parket á gólfi.
Eldhús: Eldhús var endurnýjað 2006. Snyrtileg IKEA innrétting og granít borðplata. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Helluborð endurnýjað 2020. Ofn frá 2006.
Aðrar framkvæmdir í íbúð efri hæðar: - Nýtt parket efri hæð og bílskúr 2023
- Gluggar á suðurhlið endurnýjaðir 2018
- Eldhúsgluggi á austurhlið endurnýjaður 2018
- Gluggar á vesturhlið endurnýjaðir 2018 (nema baðherbergi)
- Nýjar innihurðir 2006
Bílskúr er skráður 40,8 fm og tilheyrir efri hæð. Hann var allur tekinn í gegn, klæddur að utan og innan, nýtt þak og innréttaður sem stúdíóíbúð með eldhúsaðstöðu og baðherbergi með sturtu árið 2006.
Fasteignamat 2024 = 45.300.000 kr. fyrir efri hæð og bílskúr, F2089033
Hitaveituinntök og inntak fyrir kalt vatn eru í þvottahúsi neðri hæðar. Ein hitaveitugrind fyrir allt húsið.
Rafmagn er á sérmæli fyrir hvora íbúð, mælar í töflu í þvottahúsi neðri hæðar.
Ljósleiðarabox í þvottahúsi neðri hæðar. Ljósleiðarabox í anddyri efri hæðar.
Húsið er steinsteypt, einangrað að innan og pússað að utan. Efri hæð hússins er klædd.
Þak hússins er valmaþak og var endurnýjað um 2004 af fyrri eigendum.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali
Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður