Fasteignasalan Garður
Fasteignasalan Garður og Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali, - sími 888-7979, kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og palli í góðu tvíbýlishúsi á besta stað á Kársnesinu, Holtagerði 84 í Kópavogi. Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, hol, baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt óskráð geymsla. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 94,4 fermetrar.
Nánari lýsing:Anddyri: Flísar á gólfi, geymsla og fatahengi.
Hol: Parketlagt hol með fataskápum.
Eldhús: Flísalagt með snyrtilegri eldhúsinnréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi.
Stofa: Er björt, opin með útgengt á pall og garð.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi 3: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað baðherbergi, flísalagt með baðkari, upphengdu klósetti, handklæðaofni og innréttingu.
Þvottahús: Er á jarðhæð með sérinngangi og partur af sameign.
Geymsla í kjallara: Sameign sem er lokuð í dag en hægt væri að opna og nýta á einhvern hátt.
Bílskúrsréttur: fylgir eigninni en er háð byggingarleyfi frá byggingarfulltrúa
Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign í fjölskylduvænu hverfi, stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Eign sem er þess virði að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Einar Örn Ágústsson - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 888-7979
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður