Sveinbjörn Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 892-2916
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 693-2916
Gullengi 17, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
69.900.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
111 m2
69.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1992
Brunabótamat
48.200.000
Fasteignamat
63.000.000

Fasteignasalan Garður 

Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð í fallegu húsi við Gullengi 17. Húsið lýtur vel út og hefur verið vel við haldið í gegnum árin. 
Tvennar svalir eru á eigninni sem snúa til suðausturs og norðaustur.

Nánari lýsing eignar: 

Forstofa / gangur: Komið er inn í rúmgóða  forstofu með góðum forstofuskápum, Flísar á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Stórar og bjartar stofur með útgengt á stórar svalir til suðausturs.
Eldhús: Stórt eldhús sem er lokað af, ljós innrétting með góðu skápaplássi og góðum borðkrók við glugga.  
Hjónaherbergi: Stórt herbergi með góðum hvítum fataskápum og útgengt á svalir. 
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi Flísalagt baðherbergi með hvítri innréttingu, sturtuklefa og baðakri. 
Þvottahús: Þvottahús er innan íbúðar.
Sameign: Risloft er yfir öll húsinu.  Það er nýtt sem köld geymsla fyrir alla í húsinu þar sem hver hefur sitt pláss.  Hjóla- og vagnageymsla er í sameign. 

Þetta er draumastaðsetning fyrir fjölskyldur þar sem svæðið er bæði fjölskylduvænt og gróið og öll helsta grunnþjónusta er til staðar. Stutt er í góða leik- og grunnskóla auk þess sem verslunarkjarninn Spöngin er í nánd. Mikið framboð er af afþreyingu í hverfinu og má þar helst nefna Egilshöll og Korpuúlfsstaði, þar sem í boði er fjölbreytt afþreying, tómstundir og íþróttir. Einnig er þar kvikmyndahús og keiluhöll svo dæmi séu tekin. Fjölmargar göngu- og hjólaleiðir eru til staðar og stórar samgönguæðar til allra átta sem er mikill kostur.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.