Sveinbjörn Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 892-2916
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 693-2916
Hnoðravellir 19, 221 Hafnarfjörður
116.900.000 Kr.
Raðhús / Raðhús á einni hæð
4 herb.
170 m2
116.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2014
Brunabótamat
76.160.000
Fasteignamat
98.700.000

Fasteignasalan Garður 

Eign er seld með fyrirvara - endilega hafðu samband en þú átt sambærilega eign sem þú vilt selja
Karólína Íris fasteignasali - Sími 772-6939 kynnir: Í einkasölu fallegt og vel skipulagt  4-5 herbergja endaraðhús á Hnoðravöllum 19 í Hafnarfirði. Húsið er byggt árið 2014 og lítur einstaklega vel út að innan sem utan.

Búið er að útbúa auka svefnherbergi í bílskúrnum. Innangengt er úr húsi í herbergið og nýtist herbergið því sem venjulegt svefnherbergi og geta þau því talið fjögur. 
Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 143,1 fermetrar og bílskúrinn 26,9 fermetrar, samtals 170,0 fermetrar skv. Þjóðskrá Íslands..  
   
Nánari lýsing:
Anddyri: Lokað anddyri, flísar á gólfi og innfelldur fataskápur.
Eldhús: Snyrtileg hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og háum efri skápum. Gott vinnupláss, bakaraofn í vinnuhæð, pláss fyrir tvöfaldan ísskáp og háfur fyrir ofan helluborð. Eyja með skúffum og plássu fyrir "bar stóla". Tengi fyrir uppþvottavél í innréttingu. 
Stofa/borðstofa: Einstaklega björt og góð stofa með góðri lofthæð. Stofa, borðstofa og eldhús Í samliggjandi rými. Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengi á skjólgóðan pall með heitum potti. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum og góðu skápaplássi. Innangengt er á sér baðherbergi. 
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Flísar á gólfi og flísalögð walk-in sturta. Snyrtileg lítil hvít innrétting við vask og vegghengt klósett. 
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
*Svefnherbergi: Búið er að útbúa auka svefnherbergi í bílskúrnum en innangengt er út húsi í herbergið og nýtist herbergið því sem venjulegt svefnherbergi. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Baðkar og flísalögð sturta. Snyrtileg innrétting við vask með skúffum og skápum. 
Sjónvarpshol: Hol sem nýtist einstaklega vel sem sjónvarpshol.
Þvottahús/Geymsla: Flísar á gólfi og skolvaskur. Útgangengi út á pall.
Bílskúr: er með hita, rafmagni, vatni, hurðaopnara. Epoxy á gólfi.
Lóðin: er snyrtilega frágengin með steyptu plani, sólpalli, skjólveggjum að hluta og útigeymslurými.
Snjallhitakerfi frá Salus er í húsinu og heldur það jöfnum og góðum hita í húsinu. Það er einfalt og þæginlegt í notkun (smart home).
Gluggar og þakkantur voru málaðir núna í sumar.


Annað:
Um er að ræða einstaka eign sem er þess virði að skoða. Eignin er frábærlega vel staðsetta. Stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir:
Karólína Íris  -
 löggiltur fasteignasali
[email protected]  /  sími 772-6939
Instagram:   karolina fasteignasali


 


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.