Fasteignasalan Garður
Opið hús: fimmtudaginn 25. maí kl. 17:15 til 17:45. Bauganes 15, 102 Reykjavík.
Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir í einkasölu: fallegt og vel skipulagt einbýlishús með stórum palli, potti, útisturtu og bílskúr á besta stað í Skerjafirði. Húsið er á einni hæð auk geymslu í kjallara. Baðherbergi er endurnýjað, eldhús var endurnýjað 2020,
- Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með teikningu, söluyfirliti, ástandsyfirlýsingu seljanda ofl. -
Húsið skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og kjallara sem getur nýst sem vinnustofu, hobbý herbergi og/eða geymsla. Nánari lýsing:Anddyri: Flísar á gólfi og fatahengi.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými. Parket á gólfi. Frá stofunni er möguleiki að búa til útgengi á pall en það er háð samþykki. Alrýmið er einstaklega bjart með glugga í þrjár áttir.
Eldhús: Snyrtileg svört eldhúsinnrétting. Gaseldavél og stór bakaraofn með góðu plássi til að elda fyrir heila veislu.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, stór fataskápur og útgengi á pall.
Svefnherbergi 1: Parket á gólfi og pláss fyrir fataskáp
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi og pláss fyrir fataskáp
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi, innrétting við vask með efri skáp. Salerni.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús og gott vinnupláss
Geymsla: Gott rými sem getur nýst sem vinnustofu, hobbý herbergi og/eða geymsla.
Bílskúr: Bílskúr er hrár að innan en er með vatni, hita og rafmagni og nýjum gluggum.
Pallur: Nýr, stór og skjólgóður pallur með heitum potti og úti sturtu.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður