Fasteignasalan Garður
Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir í einkasölu ný (2022) 3-4ra herbergja íbúð með sér inngang og sér palli.
Eignin er björt, vel skipulög og hentar einstaklega vel fyrir milli stóra fjölskyldu. Í eigninni eru þrjú góð svefnherbergi, forstofa, eldhús, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og rúmgóð stofa með útgengi á sér pall. Þá fylgir íbúðinni jafnframt hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 80,10 fermetrar.
Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd að utan með viðhaldslitlum klæðningum.
Nánari lýsing:Anddyri: Sér inngangur. Innbyggður fataskápur með ágætis skápaplássi.
Stofa/borðstofa: Mynda opið rými. Frá stofunni er útgengt á svalir. Stofa og eldhús eru 29,3 fermetrar skv. teikningu
Baðherbergi: Walk-in sturta, vegghengt klósett, handklæðaofn, baðinnrétting með skúffum við vask og sér innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergið er skráð 7,7 fermetrar skv. teikningu. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum. Herbergið er mjög rúmgott, 11,0 fermetrar skv. teikngingu
Svefnherbergi: Gott herbergi með plássi fyrir fataskáp. Þetta herbergi er einnig rúmgott, 9,8 fermetrar skv. teikningu.
Svefnherbergi: Herbergið nýtist vel sem svefnherbergi, skrifstofa eða annað
en er skráð sem geymsla. Eldhús: Vönduð eldhúsinnrétting er frá ítalska framleiðandanum Milton. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur, slitsterk borplata, gott vinnupláss, gott skápapláss og bakaraofn í vinnuhæð.
Pallur: Útgengi frá stofu á sér pall sem snýr í suð- vestur.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign í fjölskylduvænu hverfi, en stutt er í alla helstu þjónustu, útivistasvæði, skóla og íþróttasvæði. Leikskóli er í þar næsta húsi.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasaliUndirbúðu eignina þína fyrir sölu og vertu tilbúin/n þegar þú færð samþykkt kauptilboð. Frítt verðmat og sanngjörn söluþóknun.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður