Fasteignasalan Garður
EIGNIN ER SELD og er í fjármögnunarferli. Mikil eftirspurn eftir sambærilegri eign.
Smelltu hér ef þú átt sambærilega eign eða hafðu samband við Baldur í síma 450-0000 / [email protected]
Í einkasölu einstaklega björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á sjöundu hæð að Asparfelli 6 í Reykjavík. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Sameiginlegt þvottahús er á hverri hæð.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 77,1 fermetrar.
Nánari lýsing:Anddyri: Fatahengi og gott pláss fyrir fataskáp.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur með góðu skápaplássi.
Barnaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Snyrtileg hvít eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Flísar milli efri og neðri skápa. Uppþvottavél innfelld í innréttingu. Ísskápur getur fylgt.
Stofa/borðstofa: Björt og góð stofa með glugga í tvær áttir. Gott pláss er á milli eldhúss og stofu fyrir borðstofuborð við svalir. Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengt á svalir. Upphengdur skenkur á vegg með baklýsingu.
Baðherbergi: Flísalegt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu. Vegghengt klósett og innrétting með skúffum við vask
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður