Opið hús: 29. janúar 2023 kl. 13:00 til 13:30.Opið hús: kl. 13:00 - 13:30 sunnudaginn 29. janúar. Staðsetning: keyrt upp að Hótel Glym og þar niður frá "bílastæði" Hótelsins.
Fasteignasalan Garður
Í einkasölu einstakt sumarhús á steyptri plötu með ótrúlegu útsýni yfir Hvalfjörðinn. Heitur pottur, rúmgóð stofa, stórt svefnherbergi og pallur sem snýr í suður.
Engin sumarhús eru fyrir neðan þessa eign svo útsýnið er óskert. Aðeins um 40 mínútur frá bænum.Húsið skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og geymsluloft. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 78,3 fermetrar. Skráðum fermetrum getur fjölgað ef geymsluris fæst skráð.
- Nýtt þráðlaust stýrikerfi fyrir gólfhita. Nýjir hitanemar í herbergi og í stofu.
- Superhost aðgangur á airbnb getur fylgt.
- Innbú getur fylgt
- Pallur þrifinn og lakkaður 2022
- Ytra birgði / tréverk málað 2021
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi. Frá forstofu er innangengt í bæði stofu og svefnherbergi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott herbergi með góðri lofthæð, úgengi á pall og innangengt á baðherbergi.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými. Rúmgóð stofa með góðu plássi fyrir borðstofuborð, setustofu og sjónvarpshorn. Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengt á stóran pall sem snýr í suður og að hluta í vestur.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting með ágætis skápaplássi, bakaraofn og uppþvottavél. Flísar milli efri og neðri skápa.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Sturta, innrétting við vask og vegghengt klósett.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsett sumarhús með einstöku útsýni. Eign sem er þess virði að skoða.
Seljandi skoðar skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður