Sveinbjörn Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 892-2916
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 693-2916
Mánatún 4, 105 Reykjavík (Austurbær)
91.900.000 Kr.
Fjölbýli / Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
127 m2
91.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2001
Brunabótamat
62.700.000
Fasteignamat
89.150.000

Fasteignasalan Garður 

Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir Í einkasölu: Fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð að Mánatúni 4 í Reykjavík. Eigninni fylgir stæði í lokuðum bílakjallara með rafhleðslustöð. Einstaklega eftirsótt staðsetning. 
  
Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi geymslu og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla í kjallara, hjóla- og vagnageymsla og hlutdeild í sameiginlegri geymslu.  Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 127,40 fermetrar, þar af er geymslan 8,10 fermetrar.

Nánari lýsing:
Anddyri: Merbau Parket á gólfi og fataskápur. Lítil geymsla.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, flísar milli efri og neðri skápa. Nýlegur bakaraofn í vinnuhæð ásamt öðrum innbyggðum fjölnota ofni. Eyja með skúffum og góðu vinnuplássi. Tengi fyrir uppþvottavél. 
Stofa/borðstofa: Bjart og gott rými með glugga í 2-3 áttir. Stofa og borðstofa í samliggjandi rými. Merbau Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengt á góðar yfirbyggðar svalir. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og pláss fyrir fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturta, vegghengt klósett og baðinnrétting við vask með efri skáp.
Þvottahús: Flísar á gólfi, skápar og borðplata með skolvask og ágætis vinnuplássi.
Geymsla í íbúð: Flísalögð með hillum og snögum fyrir útiföt.

Annað:
Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Eign sem er þess virði að skoða. 

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski -
 löggiltur fasteignasali
[email protected]  /  sími 450-0000 
Instagram: Baldur fasteignasali


Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.