Sveinbjörn Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 892-2916
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 693-2916
Dvergholt 9, 220 Hafnarfjörður
124.900.000 Kr.
Einbýli / Einbýlishús á einni hæð
6 herb.
190 m2
124.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1994
Brunabótamat
106.150.000
Fasteignamat
114.350.000

Fasteignasalan Garður 

Fallegt og bjart 190 fm einbýlishús á einni hæð á vinsælum stað í Hafnarfirði. Húsið er steinsteypt á einni hæð með fallegum skjólgóðum garði og bílskúr. Fjögur svefnherbergi og tvær til þrjár stofur. 

Nánari lýsing: Anddyri með fataskáp. Flísalagt gestasalerni er inn af anddyri. Stórt opið rými sem skiptist í stofu, borðstofu og sólskála. Útgengt er í garð frá sólskála. Eldhús með fallegri innréttingu, nýlegur steinn á borðum, Mile eldunartæki, tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur. Inn af eldhúsi er þvottahús með innréttingu og útgengt á verönd. Fjögur rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Glæsilega endurnýjað baðherbergi með frístandandi baðkari, sturta með glerskilrúmi og falleg innrétting. 
Bílskúr: Bílskúrinn er innbyggður 22 fm og fullbúinn með vatni, hita og rafmagni. Frá bílskúr er gengt í þakrými hússins sem hefur verið nýtt sem geymsla. 

Gólfefni húss: Parket og flísar.

Lóð: Garðurinn er fallegur og með skjólgirðingu. Bílastæði og göngustígar hellulagðir. 

Upplýsingar: Vönduð og falleg eign sem vert er að skoða. Staðsettning er góð og er stutt í skóla, leikskóla og verslunarkjarna.

ALLAR UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU 562-1200 EÐA HJÁ SÖLUMONNUM: 
HALLDÓR S: 693-2916  [email protected]
SVEINBJÖRN 892-2916 [email protected]


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.