Sveinbjörn Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 892-2916
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 693-2916
Drangsskarð 11D, 221 Hafnarfjörður
97.900.000 Kr.
Hæð / Hæð í fjórbýlishúsi
4 herb.
111 m2
97.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
0
Fasteignamat
29.600.000
Opið hús: 28. apríl 2024 kl. 15:00 til 15:30.

Opið hús: Drangsskarð 11D, 221 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd sunnudaginn 28. apríl 2024 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.

Fasteignasalan Garður 

Nýjar og glæsilegar sérhæðir í fallegum húsum við Drangsskarð 11 og Hádegisskarð 20.
Þessar 111 m² sérhæðir eru einstaklega bjartar og vel hannaðar og mikið lagt í frágang bæði að innan sem utan. Íbúðirnar snúa allar í suður og eru með stóra glugga í þrjár áttir.
Þær eru settar upp sem þriggja herbergja en gert er ráð fyrir að hægt sé með auðveldum hætti að bæta við fjórða herberginu.
Gólfhiti, Quartz borðplötur (Dekton), svalarlokun/sérafnotareitir, Simens raftæki, niðurfelld spanhelluborð, undirlímdir vaskar, innfelldar led lýsingar o.f.l.
Sérmerkt bílastæði ásamt fjölda auka bílastæða. Sjálfstætt loftræstikerfi í hverri íbúð sér um loftskiptin í öllum rýmum og endurnýtir hitann og skilar heimilinu góðum loftgæðum.
Eignirnar skilast fullbúnar að utan sem innan og lóð full frágengin. Eignir af þessu tagi koma ekki oft í sölu.


Nánari upplýsingar gefur Halldór Freyr, Löggiltur fasteignasali,  S:693-2916, [email protected]
Fáðu sendan kynningarbækling strax.


Stærðir og verð íbúða sem eru komnar í sölu:
Hádegisskarð 20 Íbúð 02-0101 3ja - 4ra herbergja FRÁTEKIN 
Hádegisskarð 20 Íbúð 02-0102 3ja - 4ra herbergja 111,4 m² - 97.900.000 kr 
Hádegisskarð 20 Íbúð 02-0201 3ja - 4ra herbergja 111,4 m² - 99.900.000 kr
Drangskarð 11     Íbúð 01-0101 3ja - 4ra herbergja 111,4 m² - 97.900.000 kr 
Drangskarð 11     Íbúð 01-0102 3ja - 4ra herbergja 111,4 m² - 97.900.000 kr 
Drangskarð 11     Íbúð 01-0201 3ja - 4ra herbergja 111,3 m² -SELD
Drangskarð 11     Íbúð 01-0202 3ja - 4ra herbergja 112,2 m² - 99.900.000 kr 

Drangsskarð 11 og Hádegisskarð 20 skiptist í 7 sambærilegar íbúðir.
Skipting eignar: Sérinngangur í hverri íbúð. Rúmgott anddyri með góðum fataskáp. Inn af anddyri er þvottahús/geymsla með stórum búrskáp, þvottahússkáp og innréttingu fyrir
þvottavél og þurrkara. Frá anddyri er komið inn í stórt opið rými, stofu, borðstofu og eldhús. Stofan er björt með stórum gluggum. Í efri íbúðum eru stórar svalir með svalalokun.
Neðri hæðir hafa hellulagða sérverönd og sérafnotaflöt. Möguleiki er að útbúa þriðja herbergið úr hluta stofunnar. Fallegt eldhús með djúpri borðplötu þar sem er gert ráð fyrir
tækjageymslu. Stór eldunareyja sem hægt er að sitja við. Tvö rúmgóð svefnherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er flísalagt að hluta með vönduðum 60*60 flísum.
Í sameign er sorpgeymsla, hjóla- og vagnageymsla ásamt tæknirými

Nánari lýsing:
SVANSVOTTUN
Við lokaúttekt hljóta húsin svansvottun. Það þýðir að húsin eru byggð eftir gæðakerfi þar sem tekið er á fjölmörgum þáttum sem byggingarreglugerð
nær ekki yfir að sama marki. Má þar nefna: lágmarks rekstarkostnaður, valin byggingarefni með hollustu íbúa og umhverfisáhrif í huga.
LOFTRÆSTIKERFI
Í hverri íbúð er sjálfstætt Komfovent loftræstikerfi sem að blæs inn í öll rými íbúðar fersku lofti sem að hitað er upp með lofti sem að sogað er út.
Nýtnin á orkunni þar er um 87%. Þetta þýðir lægri rekstrarkostnað en umfram allt betri loftgæði. Kerfið heldur líka loftinu á hreyfingu og í því eru líka síur fyrir loftið sem blásið er inn.
GÓLFHITI
Upphitun er með gólfhita en eini ofninn er handklæðaofn. Gólfhitagrindin er innfeld í veggnum og lokað með þjónustulúgu.
Gólfhiti og loftræstikerfi vinna mjög vel saman og skila góðum loftgæðum.
BAÐHERBERGI
Stór og breið sturta. Sturtuglerið er ekki með slá heldur svörtum ramma og stöng upp í loft. Vandaðar flísar 60*60 flísar bæði á veggjum og gólfi. Spegill með baklýsingu. Innbyggður klósettkassi.
STÓRIR FATASKÁPAR
Stórir skápar bæði í anddyri og báðum svefnherbergjum. Skáparnir sem eru frá ikea eru frekar vel búnir af innvolsi en með einni ferð í IKEA geta kaupendur mótað þá eftir sínum þörfum.
ELDHÚS
Eldhúsborðið vegg megin er með dýpri borðplötu þannig að rými er fyrir kaffivél, brauðrist og slíkt fyrir innan án þess að rýra vinnuplássið á borðinu. Tenglar eru undir yfirskápnum
þannig að auðvelt er að þrífa veggplötuna á bak við sem að er hvít og slétt. Dekton borðplötur frá Cosentino úr quartz steini. Simens raftæki, spanhelluborð er fellt niður í steinborð
þannig að það er slétt við borðplötuna. Undirfelldur eldhúsvaskur. Undir efriskápum er LED undirskápaljós.  Bakhliðin á eldhúseyjunni er klætt með hljóðdempandi þiljum.
INNFELLD LED LÝSING
Yfir eyju og framan við svefnherbergi eru innfelld 2ja metra LED ljós sem gefa nútímalegan tón og birtu.
SVALALOKUN
Íbúðir efri hæða eru með vandaðar svalalokanir og gluggum til suðurs þar af tvennar svalir með síðum gluggum.
SVALAINNSKOT OG SÉRAFNOTAFLETIR
Íbúðir neðri hæða hafa allar svalainnskot og sérafnotareiti þar sem möguleiki er að smíða pall. Skjólgott og snýr til Vesturs eða Vesturs og Suðurs
RAFLAGNIR
Tenglar og rofar eru svart efni úr Q-línunni frá Berker.
GÓLFEFNI
Parketið er Buckingham eik og er 12 mm harðparket frá Byko og er með hörkustuðulinn AC5/33. Undir öllum gólfefnum, parketi jafnt sem flísum er
hljóðdempandi undirlag bæði á efri og neðri hæðum.
YTRA BIRGÐI
KLÆÐNING
Lárétt svart klassískt bárujárn. Sementsplötur frá Viroc. Standandi 22 mm opin timbur klæðning í anddyrum, svölum og svalainnskotum.
TORFÞAK
Bara eins og í gamla daga þá er torfþak á húsinu með úthagatorfi sem aldrei þarf að slá. Friðað svæði fyrir fugla og fallegt útsýni úr sumum íbúðanna.
VIÐHALDSLÉTT LÓÐ
Göngustígar eru hellulagðir og með snjóbræðslu [ASI2] sem og allar tröppur. Þrír hvíldarpallar eru án snjóbræðslu. Lóðin er tyrfð með tvenns konar torfi
sem að hvorugt þarfnast mikillar umhirðu. Við lóðarmörk bæði austan og vestan megin er úthagatorf sem þarf  aldrei að slá en á sérafnotaflötum og
innar í lóðinni er hvítsmáratorf. Lesa má um þessar torftegundir inni á torf.is. Bílastæðin eru með nautsterkum Ecoraster grindum fylltum af möl.
ÚTILÝSING
Útilýsingin sem er við öll anddyri og svalir er 2ja metra innfelld óbein LED lýsing. Tröppur í lóð eru með handriðum með lýsingu undir handlistanum.
Útilýsingin gefur einstaklega fallegt yfirbragð yfir eignirnar þegar dimma tekur.
 
HLEÐSLA RAFBÍLA
Lagnaleiðir eru að hleðslu rafbíla á 10 stöðum á lóðinni. Í aðaltöflu er gert ráð fyrir að hægt sé að tengja hleðslu rafbíls inn á rafmagnsmælir á hverri íbúð fyrir sig.
Fallegir hleðslustaurar eru uppsettir fyrir þær hleðslustöðvar sem ekki koma á vegg.
 


 


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.