Sveinbjörn Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 892-2916
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 693-2916
Hafnarbraut 13B, 200 Kópavogur
104.900.000 Kr.
Fjölbýli / Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
132 m2
104.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2019
Brunabótamat
74.590.000
Fasteignamat
86.650.000

Fasteignasalan Garður 

Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir í einkasölu: Einstaklega fallega, góða og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum á fjórðu og efstu hæð í nýlegu (2019) lyftuhúsi að Hafnarbraut 13B, Kársnesi í Kópavogi. Stæði í bílageymslu fylgir. Þetta er einstök eign sem er þess virði að skoða. 

- Dýrahald er leyfilegt 
- Svalalokun
- Fallegt sjávarútsýni frá stofu og öllum herbergjum.
- Innréttingar frá HTH
- Eldhústæki frá Bræðurnir Ormsson, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
- Gólfhiti á baðherbergjum
- Hús klætt að utan með vandaðri álklæðningu að hluta
- Leiktæki fyrir börnin eru á baklóð. 

Íbúðin skiptist í anddyri, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 132,30 fermetrar, þar af er geymslan 7,8 fermetrar.

Nánari lýsing:
Anddyri: 
Góður fataskápur, parket á gólfi. 
Stofa/borðstofa: Einstaklega bjart og gott rými með sjávarútsýni. Eldhús, stofa og borðstofa mynda eitt rými. Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengt á svalir. 
Eldhús: Snyrtileg dökk edhúsinnrétting með eyju og mjög góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum og sér baðherbergi. 
Baðherbergi - Hjóna: Flísalagt í hólf og gólf. Walk in sturta, snyrtileg innrétting við vask, handklæðaofn og vegghengt klósett.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Walk in sturta, snyrtileg innrétting við vask, handklæðaofn, vegghengt klósett og falleg lýsing bakvið spegil. 
Þvottahús: Flísar á gólfi, innrétting og skolvaskur.

Annað:
Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. 

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - 
löggiltur fasteignasali
[email protected]  /  sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali


Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.