Sveinbjörn Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 892-2916
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 693-2916
Suðurbraut 18, 801 Selfoss
79.800.000 Kr.
Atvinnuhús
0 herb.
251 m2
79.800.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
7.990.000

Fasteignasalan Garður 

Um er að ræða ca.1,2 hektara eignarlóð með 251,3 fm geymsluhúsnæði við Suðurbraut nr 18 í Tjarnarbyggð í 4km fjarlægð frá Selfossi.

Í dag stendur á lóðinni 251,3 fm geymsluhúsnæði með mikilli lofthæð. Húsið er stálgrindarhús á einni hæð með ca 6.m lofthæð upp í hæðsta punkt. Innkeyrsluhurð er 4.metrar. 

Búið er að teikna ca. 100 fm einbýlishús á lóðina sem skiptist upp samkvæmt teikningu í stóra stofu, eldhús sem er opið inn að stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, anddyri og þvottahús. 

Upplýsingar um lóðir í Tjarnarbyggð:


Lóðirnar eru á 600ha landsvæði, þær eru 6 saman í klasa, milli klasa liggja breiðar göngu- og reiðleiðir til afnota fyrir lóðareigendur. Stærð lóða eru frá 1ha til 3,3 ha. Það má byggja íbúðarhús og útihús á lóðunum sem eru allt að 1500fm stærð og víðtækar heimildir eru til húsdýrahalds, ræktunar og léttrar atvinnustarfsemi. Heimili, skemma, gróðurhús og hesthús á einum stað.

Heimilt er að byggja íbúðarhúsnæði allt að 1000 fm að brúttófleti auk þeirra úthúsa sem fylgja starfsemi sem fram fer á lóðinni, en skulu úthús og íbúðarhús þó aldrei vera stærri en 1500 fm samtals að brúttófleti. Árborg og viðkomandi veitur munu sjá um allan rekstur svæðisins t.d. snjómokstur, sorphirðu, skólaakstur og tæmingu rotþróa, heitt og kalt vatn, lýsingu og fjarskipti.

Á svæðinu er heimiluð ýmis atvinnustarfsemi tengd landbúnaði í samræmi við aðalskipulag Árborgar. Er þar nefnt sem dæmi ýmiskonar dýrahald og ræktun, nokkurskonar frístundabúskapur með takmörkunuðum fjölda húsdýra, bænda eða búgarðagisting. Einnig er þar nefnd útleiga gróurreita fyrir matjurta- eða skólagarða, tamningar, reiðskólar, ýmis fræðslustarfsemi og námskeiðahald um ræktun, náttúru, gróður, meðferð og umönnun dýra.

Ljósleiðari er í Tjarnabyggð. Stutt er í alla þá fínu þjónustu sem er í boði á Selfossi s.s. alla almenna verslun, skóla og læknisþjónustu. Reiðvegur mun umlykja allt Tjarnabyggðasvæðið. Auk þess verða reiðleiðir meðframa aðallvegi auk tveggja reiðleiða þvert yfir svæðið.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.